Það eru tvær leiðir í boði varðandi greiðsluseðla:
1. Fela greiðsluseðil í heimabanka, engin gjöld eða vextir leggjast á seðilinn. Nýr seðill kemur að ári sem boð um að ganga í félagið.
2. Senda inn beiðni um niðurfellingu á greiðsluseðli. Ef þú vilt ekki fá aftur boð um að ganga í félagið í formi greiðsluseðils biður þú okkur einnig að fjarlægja nafn þitt af félagatali og þá berast ekki fleiri seðlar frá félaginu nema viðkomandi biðji um inngöngu í félagið sjálfur seinna meir.