
Við val á Þekkingarfyrirtæki ársins verður horft til fyrirtækja sem hafa þróað eða innleitt ferli sem auðvelda starfsfólki að samræma vinnu og barneignir. Þá verður litið sérstaklega til fyrirtækja sem hafa náð mælanlegum árangri í að viðhalda þekkingu innan fyrirtækisins og skapað jákvæð áhrif á rekstur þess og samfélagið í heild sinni.
Einnig er leitast eftir tilnefningum fyrir viðskiptafræðing eða hagfræðinga ársins sem sýnt hefur faglega seiglu og verið leiðtogi á sínu sviði.
Við hvetjum þig til að senda inn tilnefningu ef þú þekkir til fyrirtækis eða einstaklings sem þú telur eiga verðlaun skilið. Frestur til að senda inn tilnefningu er út 31. mars 2024.
Comments